9.2.2013 | 11:10
HJÓLASTÓLASVEITIN gengur af göflunum 13. feb. kl. 20.30
12.9.2012 | 12:58
UPPSTANDA 21. ALDARINNAR !!!
Nú verður glaumur og gaman því fjórir bráðskemmtilegir uppistandarar ætla að leggja undir sig Hafnarfjörðinn. Það eru þau Bergvin Oddson aka Beggi blindi, Elva Dögg Gunnarsdóttir, Leifur Leifsson aka öryrkinn óstöðvandi og Sigurgyða Þrastardóttir sem er ný á sviði uppistands á Íslandi... Elva og Leifur eru meðlimir HJÓLASTÓLASVEITARINNAR. Sýningin er liður í hátíðinni Iceland comedy festival...
Hér er hægt að kaupa miða http://midi.is/leikhus/1/7230/ en einni verður hægt að kaupa miða við dyrnar
Uppistandið mun eiga sér stað föstudagskvöldið 21. september 2012 klukkan 21:00 í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði og kostar litlar 1000 kr. inn.
Sjáumst hress, Beggi, Elva, Leifur og Sirrý :)
7.4.2011 | 21:35
Klippur frá síðasta giggi í Gaflaraleikhúsinu..........
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 14:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.3.2011 | 23:52
Allt að gerast hjá HJÓLASTÓLASVEITINNI
ha ha erum enn á lífi :-)
og í fullu fjöri..... nú er allt að gerast hjá HJÓLASTÓLASVEITINNI......Leifur á leið á Hvannadalshnjúk og Elva Dögg í heilaaðgerð......
Vinna við heimildarmyndina komin á fullt skrið aftur og meðlimirnir reita af sér brandara sem aldrei fyrr.
Næsta gigg er alveg að komast á koppinn og verður í Gaflaraleikhúsinu, tímasetning auglýst næstu daga.
Hlátursknús á ykkur
20.12.2010 | 09:50
JÓLAKNÚS frá HJÓLASTÓLASVEITINNI
HJÓLASTÓLASVEITIN óskar ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Við þökkum stuðninginn á árinu.
Í albúmið eru komnar myndir frá síðast gigginu okkar í Gaflaraleikhúsin 2. des. sl. sjá HÉR
Meðan við leggjumst í jólahýðið erum við að huga að því að klára heimildarmyndina okkar um ferðir sveitarinnar um landið. Stefnum svo á gigg í janúar og febrúar. Nánar auglýst síðar.
JÓLAKNÚS Á YKKUR
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 09:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.11.2010 | 21:22
UPPI HVAÐ ! í Gaflaraleikhúsinu 2. des. kl. 20.30
2.10.2010 | 01:07
Erum enn á lífi og í rokna stuði
HJÓLASTÓLASVEITIN stækkar og þroskast þó hún sé ekki dugleg að blogga. Í sumar hefur sveitin unnið mikla hugmyndavinnu. Og nú í haust bættist nýr meðlimur við sveitina Elva Dögg Gunnarsdóttir sem gefur sveitinni alveg nýtt yfirbragð en hún er með Tourett.
Sveitin vinnur nú að upptökum á sketsum í samvinnu við sov.is og æfir upp prógramm sem flutt verður að Bifröst og í Hafnarfirði bráðlega. Þá erum við líka að vinna í eldra efni fyrir heimildarmyndina okkar.
Endilega kíkið á okkur á Facebook þar sem við förum geyst þessa dagana
1.10.2009 | 23:55
HJÓLASTÓLASVEITIN í Íslandi í dag
HÉR má sjá viðtalið úr Íslandi í dag frá 28. sept. sl. þar má sjá brot af uppistandinu.
Menning og listir | Breytt 2.10.2009 kl. 00:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.9.2009 | 10:15
Leikhúsveisla í Borgarleikhúsin 28. sept. nk. kl. 20.00
List án landamæra mun blása til stórbrotinnar leikhúsveislu í Borgarleikhúsinu mánudaginn 28. September kl. 20.00, í kjölfarið á norrænu ráðstefnunni Líf og list án landamæra sem List án landamæra stendur fyrir sama dag á Grand Hóteli.
.Norski hópurinn Dissimilis mun flytja verkið Árstíðirnar fjórar á stóra sviðinu, en hópurinn kemur hingað til lands í boði Listar án landamæra og Norrænu ráðherranefndarinnar.
.
Dissimilis verða ekki ein um stóra svið Borgarleikhússins, því eftirtaldir hópar munu einnig stíga á sviðið: HJÓLAST'OLASVEITIN með Uppi hvað, Tjarnarleikhópurinn með Hótel Hrollstaði og Ég og vinir mínir með brot úr Húmanímal.
.
Frítt er á Leiksýninguna, en þeir sem vilja tryggja sér sæti er bent á að hafa samband við Þroskahjálp í síma 588-9390 eða netfang: asta@throskahjalp.is
.
DISSIMILIS
Fyrir u.þ.b. 30 árum sat Kai Zahl, faðir þroskahefts ung manns, og átti erfitt með að sætta sig við að stærsti draumur sonar hans um að spila á hljóðfæri og spila í hljómsveit gæti ekki orðið að veruleika því að sonurinn gat ekki lesið nótur. Kai tók að hanna einfalt nótnakerfi með litum sem gerði syni hans kleift að læra að spila á hljóðfæri og 1981 var fyrsta hljómsveit hans stofnuð. Þetta var upphafið að Dissimilis.
Næstu árin fóru fleiri að æfa með Dissimilis og árið 1987 skrifaði Kai Zahl söngleik fyrir hópinn. Fyrsta sýning þeirra var sýnd fyrir fullu húsi í Hljómleikahöllinni í Osló. Þetta var í fyrsta skipti sem eingöngu einstaklingar með þroskaskerðingu komu fram á sýningu í Osló og olli hún afgerandi hugarfarsbreytingu sýningargesta.
Áfram var haldið næstu árin, hljómsveitirnar urðu fleiri og fjölbreyttari og danshópar og kórar bættust við. Í dag eru um 800 meðlimir í Dissimilis í Noregi og um 2500 í öðrum löndum.
Fyrir ári síðan sýndi hópurinn óperuna Jenny, en annerledes opera í nýju Norsku óperunni í Osló við frábærar undirtektir og nú eru þau komin til Íslands og sýna okkur verkið Árstíðirnar fjórar.
Leikstjóri og Danshöfundur: Kari Beth Thørrisen.
Píanóleikari: Tatiana Fokina.
Leikarar: Alexander Stangeby Paulsen, Elin Hellesvik, Else-Mari Andreassen, Emilie Grenan, Gry-Lillian Nilsen, Jon Bjørlykke, Kasper Blaauw Johansen, Kjetil Ringen, Markus Lie Tønnesen, Philip Willoch Syse, Mathias Hernes, Mari Hegdal, Marie Underland Mjelva, Saga Haugland, Solveig Aksnes, Solveig Aaland, Stein Kristiffersen, Stian Mørk, Thea Berg Dønås, Thor-Arne Korsell, Trine Kramås og Ådne Klungseth.
HJÓLASTÓLASVEITIN
Þann 11. janúar 2008 varð Hjólastólasveitin formlega til en hún er sprottin upp af námskeiði hjá Halaleikhópnum haustið 2007. Tilgangur félagsins er að skemmta fólki með uppistandi víðs vegar, innanlands sem utan, vekja athygli á málefnum hreyfihamlaðra og annarra fatlaðra í samfélaginu og efla heilsu allra landsmanna með hlátri.
Á þeim tveim árum sem Hjólastólasveitin hefur starfað hefur hún komið fram í 21 skipti vítt og breitt um landið. Ljóst er að þetta framtak er algjör nýlunda og frumkvöðlastarfsemi sem sveitin er að framkvæma um þessar mundir.
Hjólastólasveitina skipa: Ágústa Skúladóttir, Ása Hildur Guðjónsdóttir, Guðríður Ólafsdóttir, Kolbrún Dögg Kristjánsdótti, Leifur Leifsson og Örn Sigurðsson.
.
Tjarnarleikhópurinn
Tjarnarleikhópurinn samanstendur af ungu og spræku fólki sem á það sameiginlegt að hafa brennandi áhuga á leiklist og flestu menningartengdu. Leikararnir stunduðu allir leiklistarnám í framhaldsskóla og stofnuðu formlega Tjarnarleikhópinn þegar framhaldsskóla lauk.
Hópurinn hefur verið starfandi um nokkurra ára skeið og gert víðreist með sýningar sínar, sýnt innalands og erlendis en hópurinn sýndi verkið "Okkar eigin Shakespeare" í Danmörku fyrir tveimur árum við góðar undirtektir. Í hópnum er einnig liðtækt myndlistar- og tónlistarfólk og rithöfundar sem hafa lagt hópnum til handrit þótt flestar sýningar sínar vinni hópurinn í spunavinnu.
Tjarnarleikhópurinn mun flytja verkið Hótel Hrollstaðir. Það er ekki fyrir alla að gista á hótel Hrollsstöðum myndir þú þora?
Leikarar: Andri Freyr Hilmarsson, Arnbjörg Magnea Jónsdóttir, Auðun Gunnarsson, Ástrós Yngvadóttir, Bjarki Erlingsson, Edda Sighvatsdóttir, Elín Ólafsdóttir, Gísli Björnsson, Guðmundur Stefán Guðmundsson, Hildur Sigurðardóttir, Halldóra Jónsdóttir, Halldór Steinn Halldórsson, Íris Björk Sveinsdóttir, Rut Ottósdóttir og Sigurgeir Sigmundsson.
Kennarar: Anna Brynja Baldursdóttir, Guðlaug María Bjarnadóttir og Guðný María Jónsdóttir.
Ég og vinir mínir
Húmanímal var frumsýnt í apríl 2009 og fékk frábærar viðtökur gagnrýnenda og áhorfenda. Hún hlaut 9 grímutilnefningar og var nýlega sýnd á Lókal leiklistarhátíðinni. Húmanímal er fyrsta samvinnuverkefni hópsins Ég og vinir mínir. Sýningin var unnin í spuna þar sem meðlimir hópsins deildu ástríðum sínum, löngunum, upplifunum og rannsóknum.
Í Húmanímal var fókuspunkturinn settur á mannlega hegðun. Hvatalíf mannsins, langanir, þrár og firring var meðal annars til umfjöllunar. Það má segja að mannskepnan hafi verið krufin til mergjar. Hvernig þróaðist þessi skrítna dýrategund? Hverjir eru siðir hennar? Hverjar eru langanir hennar og hvað gerist þegar hún sleppir fram af sér beislinu?
Leikstjórar: Friðrik Friðriksson og Friðgeir Einarsson.
Búningar og leikmynd: Rósa Hrund Kristjánsdóttir.
Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirsson.
Leikarar: Álfrún Helga Örnóflsdóttir, Dóra Jóhannsdóttir, Margrét Bjarnadóttir, Saga Sigurðardóttir, Jörundur Ragnarsson og Friðgeir Einarsson.
Frítt er á Leiksýninguna, en þeir sem vilja tryggja sér sæti er bent á að hafa samband við Þroskahjálp í síma 588-9390 eða netfang: asta@throskahjalp.is
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 10:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)