Umsagnir

Eðalhúmor, gæðaleikur, algjör snilld!

Hér fór stuttverkahátíðin á flug! Uppistand í hæsta gæðaflokki. Örn hóf flugið með glæsibrag frábærar tæmingar, fylgdi svo hver á fætur öðrum; Kolbrún heillandi, Guðríður með glimt í auga og Leifur frábær.
Hér laðar leikstjóri fram gæðaleik og eðalhúmor - leikandi snilld. Frábær vinna hjá Ágústu (Harpa Arnardóttir 2007 leiklist.is).

„Þetta er mjög líflegur hópur með húmor fyrir fólk á öllum aldri“ sagði Ólafur Jarl 13 ára.

Uppistandið ágætt var
ekki er því að leyna.
Enda þarf ég ekki par
ykkur tvær að greina. 

Helgi Seljan eftir Gospelkvöld í Hátúni 10. 31. janúar 2008

Hjólastólasveitin var tvisvar sinnum með uppistand á atburðum sem við fengum tækifæri til að sækja nýlega. Óhætt er að segja að uppistand Hjólastólasveitarinnar hafi vakið mikla lukku og kátínu meðal áhorfenda á öllum aldri.

Með góðum kveðjum frá starfsfólki félagsmálaráðuneytisins: Ingibjörgu Broddadóttur, Lindu Rós Alfreðsdóttur og Þór G. Þórarinssyni.

Þið eruð æðisleg ! - Berglind Jónsdóttir
Þið rúllið - Helga Guðmundsdóttir
Áfram Áfram - Hólmfríður Kristjánsdóttir
Takk fyrir góða skemmtun. Haldið áfram - Hilmar og Hanna Þorlákshöfn
Meiriháttar æðislegt ! Takk ! - Anna Jórunn Stefánsdóttir
„FRÁBÆRT UPPISTAND" - Sjöfn Þórarinsdóttir
Takk fyrir frábæra skemmtun - Svanur Ingvason
Þið rúllið he he -- Stefán Ólafsson
Heppin að sleppa Spaugstofunni - Þið eruð miklu skemmtilegri ! - Pálína Snorradóttir
Dásamleg sýning, takk fyrir skemmtunina - Margrét Ísaks
Frábært og einlægt, rokk og rúll - Íris Árný Magnúsdóttir L.S.
Þetta var snilldaruppistand - rúll on! Takk fyrir mig - Guðrún Halla Jónsdóttir Leikfélagi Selfoss

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband