HJÓLASTÓLASVEITIN rúllar yfir á Selfoss með UPPIHVAÐ?

F53111108 hjólastóll 05

 Fjórir hjólastólar ásamt fríðu föru-nauti, MU-MÚ, Rampus og Stúfur hinn eini sanni sem neitar að fara til fjalla, leggja land undir fót og herja á Selfyssinga og nærsveitarmenn með sínu ærlega og frumsamda gríni í janúarbyrjun 2009.

Uppistandararnir eru fjórir fjörugir einstaklingar sem nota allir hjólastól,  á alveg einstakan hátt! Þeir verða með uppistand eða sitdown og segja frá persónulegri og ópersónulegri reynslu af því að ferðast um á fjórum hjólum í landi tækifæranna. Um áskoranir í lífinu, huglægar sem hlutbundnar hindranir, ástina, ferðaþjónustu fatlaðra, geimverur, forseta lýðveldisins, alkahólsjúka hamstra, Perkúlahjónin í Finnlandi, tilskipanir og kvaðir Evrópu sambandsins, bónorðin tíu, afrakstur ástarviku Bolvíkinga, af fötluðum pólitíkusum.... og margt margt fleira.  

Hvenær eiga Selfyssingar von á þessum hjólastólum í bæinn? Þegar jólin hafa gengið um garð og jólaskrautið fer í kassa og drunginn og tómleikinn fara á stjá, vömbina full af keti, kökum, karamellum, mandarínum og öli. 

Í janúarbyrjun er tilhneiging hjá landanum að  rjúka á hlaupabrettið og kaupa sér árskort í líkamsræktarstöð sem er gott mál en HJÓLASTÓLASVEITIN er með ódýra lausn við að ná af sér jólamatnum. Þú slærð tvær flugur í einu höggi með því að hlæja duglega svo að  skvapið hristist til og frá. Súrefnismettun eykst við hláturrokur, lundin léttist, vöðvar styrkjast í andlitinu sem og á maganum, rassi og lærum.

Hristum upp í okkur, sitjum og stöndum saman, höfum gaman með því að koma saman í litla Leikhúsinu á Selfossi laugardaginn 10. janúar næst komandi. Látum jólaskvapið breytast í sixpakk á vömbinni með hlátri.

Miðaverð 1000 kr.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband